Egilsson hf. • Köllunarklettsvegi 10 • 104 Reykjavik • Iceland            +354-575 5700            info@egilsson.is
FORSÍÐA

Fréttir

Föstudagur 21.maí 2010

EGILSSON HF. FÆR UMBOÐ FYRIR HASBRO Á ÍSLANDI

 

Eitt fremsta fyrirtæki heims í framleiðslu á leikföngum, HASBRO, hefur valið Egilsson hf. sem framtíðar samstarfsaðila um dreifingu og sölu á vörum fyrirtækisins á Íslandi. Vörumerki HASBRO eru mörg mjög þekkt á Íslandi og hafa löngum staðið fyrir góð gæði. Má þar nefna vörumerkin: TRANSFORMERS, STAR WARS, PLAYSKOOL, MONOPOLY, LITTLEST PET SHOP,

MY LITTLE PONY, PLAY DOH, og spilin TRIVIAL PURSUIT, BATTLESHIP og OPERATION..

 

Frekari upplýsingar um vörumerki HASBRO má finna á www.hasbro.com

 

„Við erum þakklát og auðmjúk yfir þessum tíðindum. Egilsson hefur um áratuga skeið verið dreifingaraðili fyrir þekkta leikfangaframleiðendur eins og RAVENSBURGER, PIATNIK og SES. HASBRO er fullkomin viðbót við heildsölurekstur Egilsson en markar jafnframt ákveðin tímamót í sögu fyrirtækisins sem hefur sett sér það markmið að verða leiðandi í leikfangaheildsölu á Íslandi,“ segir Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Egilsson.

 

 

Þriðjudagur 26.maí 2009

EGILSSON HF. HLÝTUR FJÖRUSTEININN

 

Góðir straumar frá álfhólnum.

 

„Við vorum ótrúlega ánægð með að fá þessa viðurkenningu og stolt yfir að hafa náð þessum árangri,“ segir Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Egilsson hf., sem rekur meðal annars verslanir Office 1. Fyrirtækið hlaut nýverið Fjörusteininn, umhverfisverðlaun sem Faxaflóahafnir veittu nú í fjórða sinn.

  

Fjörusteinninn er viðurkenning Faxaflóahafna til fyrirtækja sem skara fram úr í frágangi umhverfisins og hafa með metnaði byggt falleg hús á hafnarsvæðinu.

  

„Við höfum hugað töluvert að umhverfinu og gaman að segja frá því að við erum staðsett við hliðina á friðuðum álfhól,“ segir Kjartan og bætir við að margir hafi haft á því orð að mikil gæfa fylgi því að búa í návígi við álfana. „Við finnum í það minnsta fyrir góðum straumum,“ segir hann glettinn.   

 

Egilsson stendur við Köllunarklettsveg 10 en fyrirtækið stóð fyrir byggingu hússins og flutti inn fyrir tæpum tveimur árum. „Við höfum lagt kapp á að aðkoman og lóðin okkar sé snyrtileg og höfum reynt að blanda saman þessari byggingu og gróðrinum sem við höfum plantað í kringum húsið,“ segir Kjartan og tekur fram að starfsfólkið leggi sitt af mörkum að halda umhverfinu sem snyrtilegustu.

  

Hjá Egilsson er þó ekki aðeins hugað að umhverfinu utanhúss heldur einnig annars staðar í fyrirtækinu. „Við gætum þess að endurvinna pappír auk þess sem við hugsum um það í rekstri okkar að flytja inn umhverfisvæna vöru, eins og pappír og ritföng,“ útskýrir Kjartan.

  

En hvað finnst honum um umhverfisvitund fyrirtækja almennt? „Ég held að það hafi orðið mikil umhverfisvakning í þjóðfélaginu á undanförnum árum og að þeir sem hafa verið að endurnýja húsnæði sitt eða byggja nýtt hafi hugað betur að sínu nánasta umhverfi en oft áður. En maður hræðist það í dag þegar hallar undan fæti að það verði meira um ókláruð hús og lóðir á næstunni,“ segir Kjartan og hefur einnig áhyggjur af þróun í umhverfisvitund almennings. „Umhverfisvænar vörur eru oft á tíðum dýrari í innkaupum en aðrar og spurning hvort þær vörur muni víkja í kreppunni fyrir ódýrari og minna umhverfisvænum vörum,“ segir Kjartan sem þætti það ekki góð þróun.

  

Egilsson ætlar þó ekki að leggja árar í bát á næstunni og lætur Fjörusteininn vera áminningu um góðan árangur sem vert er að halda og jafnvel bæta.